Um okkur

Við stöðina starfa 12 sérmenntaðir augnlæknar sem eru sérhæfðir í öllum helstu undirsérgreinum augnlæknisfræði, t.a.m. barnaaugnlækningum, sjónhimnu og augnbotnasjúkdómum, hornhimnusjúkdómum, glákusjúkdómum, augnskurð-lækningum, augnlokaaðgerðum og laserlækningum.​

Augnlæknar stöðvarinnar hafa sótt sérfræðimenntun sína til Svíþjóðar, Noregs, Bretlands, Skotlands og Bandaríkjanna. Sérfræðinámið tekur að jafnaði 4 til 6 ár og er það mikill styrkur fyrir fagið hversu fjölbreytta menntun augnlæknar hafa hlotið. Jafnframt hafa þau góðu tengsl við hina ýmsu erlendu háskóla verið fræðigreininni og sjúklingum til mikilla hagsbóta. Sjúklingar okkar eru á öllum aldri – ungir jafnt sem aldnir.

Hjá okkur starfa jafnframt framúrskarandi ritarar og aðstoðarmenn lækna sem leggja sig fram við að þjónusta viðskiptavini af alúð.

Saga Augnlækna Reykjavíkur

Landakotsspítali tók til starfa í október 1902 og var augnlæknum veitt aðstaða þar fyrir sjúklinga sína, sem fylgdi þeim öldina á enda. Það var þó ekki fyrr en árið 1969 að formleg augndeild var loks stofnuð á Landakoti. Í september 1973 tók göngudeild augndeildar til starfa á neðri hæð Öldugötu 17, sem var áður innréttuð sem íbúð. Árið 1989 keypti Landakotsspítali líka efri hæð og ris og var þá allt húsið komið í eigu spítalans og nýtt undir starfsemi göngudeildarinnar. Landakotsspítali var sameinaður Landsspítala 1996.

Um aldamótin 2000 flutti augndeildin á Landspítala Háskólasjúkrahús. Í kjölfarið tóku sérfræðingar deildarinnar yfir starfsemi Öldugötu 17. Þá var farið að þrengja að starfseminni enda mikil þróun í tækjabúnaði sem krafðist sérhæfðara húsnæðis. Árið 2004 flutti fyrrnefnd stofa  frá Öldugötu 17 í Hamrahlíð 17 og var nafninu þá breytt í Augnlæknar Reykjavíkur. Nýir sérfræðingar hafa bæst í hópinn og aðrir hafa helst úr lestinni á þessum árum.

Hjá Augnlæknum Reykjavíkur sinna sérfræðingar okkar forvörnum, greiningu og meðferð á gláku, augnsjúkdómum barna og sjúkdómum í augnbotnum svo sem ellihrörnun eða skemmdum vegna sykursýki. Stofan er vel tækjum búin og býr stofan yfir fullkomnum tækjum til myndgreiningar og rannsókna á augnsjúkdómum, sem og leysitæki sem mest eru notuð við við meðferð á gláku og augnbotnasjúkdómum svo sem ellihrörnun og sykursýki í augnbotnum en einnig í tengslum við aðgerðir vegna skýs á augasteini.

Í desember 2025 flutti stofan í nýtt og glæsilegt húsnæði á 5. hæð í Hamrahlíð 17, þar sem enn betur fer um starfsmenn og skjólstæðinga.

Sarah Williams

The team at Agency has an exceptional talent for understanding complex challenges and turning them into elegant solutions.

Their work on our enterprise software has simplified our users’ daily workflows while maintaining the sophisticated functionality we need.

Agency’s design system revolutionized how our teams work. We now have a cohesive brand presence across all platforms, and our development time has been cut in half. Their work continues to pay dividends months after project completion.

Laura Taylor

Hear from our biggest fans

Don’t just take our word for it – explore the real experiences shared by customers who have transformed their online presence with our expertise.

The depth of thought and attention to detail Agency brings to each project is remarkable. They took the time to understand our industry’s unique challenges and created solutions that put us leagues ahead of our competition.

Mark Anderson

What impresses me most about Agency is their ability to solve problems we didn’t even know we had.

Their strategic insight helped us identify new opportunities while solving our immediate challenges. They’re truly partners in our success.

Tom Richards

Agency’s approach to our app redesign was methodical and inspiring. They balanced user needs with business goals perfectly, creating an experience that our customers love and our team is proud to support.

Rachel Kim